What goes around, comes around...

Hot'N'Sweet

25.07.2007 22:22:27 / skvis

I said i think i'll go to Boston

Jæja.. long time no skrif... Ohh það er svo mikið að segja frá að ég er búin að gleyma því.. en ég ætla að bara að gera punkta... nenni ekki að skrifa allt.. :lol:

  • Ég og Anna erum að fara til Boston á fimmtudaginn næsta, semsagt 2.ágúst að versla... :lol: :D hveru geggjað er það... Hún ætlaði að fara á þjóðhátið en ég náði að draga hana með mér til Boston í staðinn til að versla.. ;)Hún á það skilið!! getum ekki beðið.. :) Verðum á hotelinu sem allt Icelandair crew-ið er.. geggjað.. ;) Við komum heim 5.ágúst..
  • Á mánudeginum efir það.. semsagt 6. ágúst erum við svo að fara til Spánar.. ;) Verðum þarf í 11 daga.. Þá bætist Kara við í hópinn.. Hlakka líka geggjað til þá.. Tana alla dagana.. 8) hlakka til.. Við 3, sólin á daginn og djamm á kvöldin.. gelluferð dauðans.. ;)
  • En Gvuuð... Talandi um Boston... eg og Anna vorum nú bara næstum því farnar til Boston um daginn.. Við vorum á Boston hliði og rampurinn (konan sem sér um velina) bað okkur um ða hoppa uppí vél og tékka hvort að ein kona væri komin og við fórum og vorum alveg soldið lengi því það var svo löng röð i rananum.. en svo komum við að sætinu sem var 33D (aftast) og hun var ekki en var rétt á eftir okkur þannig að við vorum hjá klóstunum og biðum þangað til að hun settist.. svo löbbuðum við til bara til baka en þá var bara buið að loka vélinni og rampurinn búin að keyra ranan frá og við bara í vélinni.. og flugfreyjan bara GVUÐ!!! opnaði vélina og var alveg vinkandi og eitthvað.. hehe frekar fyndið.. :) var bara eitthvað svona sign að við áttum að fara til Boston.. ;)

Jæja.. ég man ekki eftir neinu meira i bili.. ég og Anna erum aðeins hérna að leggja á ráðin.. :$ en allavega, hugsanlegt djamm á laugardaginn.. ;)

þangað til næst..

Dísa Edwards.. :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 16:13:17 / skvis

Do you believe in MAGIC..

Vitiði hvern ég sá í gær... :D Magic Johnson!! hversu töff er það?? þið sem vitið ekki hver það er þá er það körfubolta gæji sem spilar með La Lakers og er mjög frægur.. ;) eða á ég ekki bara að segja mjög góður.. bara bæði.. En allavega, ég og Anna vorum að vinna í dag og svo segir einvher: hey, magic johnson er hérna og við bara HA?? hringdum niðrí load og bara uhh er magic ennþá þarna og þeir bara jebb, situr hérna niðri VIP. Ég og Anna bara tókum á skarið og hlupum frá innritun niðrí load á pinnahælunum. Allir bara uhh ok, hvað er að gerast... En jæja við komum á staðin og vorum bara vóvv... Geggjað að sjá hann.. hann sat þarna með familyunni. Þau voru að millilenda í einkavélinni sinni.. Geggjað næs öll.. ;) En allavega við fengum eiginhandaráritun og á minni stóð: To Disa.. Stay sweet og svo Magic Johnson La Lakers.. ;) svo fengum við mynd af okkur með honum.. haha geggjaðir nöllar.. ;)  ég man ekki einu sinni hvað ég sagði við hann ég var í svo miklu shoki eða eitthvað að fara tala við hann.. Man ekkert hvað ég sagði.. stressið að fara með okkur..8)
Þegar við komum niður voru öryggisverðirnir alveg ok, við sáum ykkur bara á spíttinu og við vorum alveg ok, annað hvort eru þær orðnar alltof seinar á hlið eða þær eru að fara hitti Magic.. ;)

Þannig að nú held ég að þetta hafi verið frægasti sem ég hef hitt.. Hitti reyndar líka Viggo Mortensen.. hvort ætli sé frægari.. en ég fékk ekki mynd af Viggo.. leigði honum bara bíl.. ;)

 Svo var annað líka pínu skemmtilegt.. það var lítill hundur að fara til Osló í dag og hann fékk bara að fara um bord og fá sæti við hliðina á eigandanum afþví að hann var svo lítill og var nyfarin frá mömmu sinni.. Dúllan... :lol: algjör dúlla.. langaði að eiga hann..

Annars er alltaf að styttast í spánarferðina.. :) hun er eftir  nákvæmlega mánuð! :) hlakka til.. það er nú búinn að vera pínu spárna fílingur hérna á íslandi.. ég er búin að vera í sólbaði í 2 vikur og það er eiginlega bara eins og ég sé nýkomin frá spáni.. búin að ná mér í þenna fína lit.. 

ohh ég er að bilast yfir litla hundinum á Akureyri, honum Lúkasi sem dó.. :( ég þoli ekki svona fólk!! hvað er eiginlega að fólki!! Sparkandi í saklausan hund, og spörkuðu þangað til að hann hætti að ýlfra..:cry:   ég get bara farið að gráta á að hugsa um þetta! fólk er stundum svo ógeðslegt. Greyið hundurinn var týndur, búinn að týna eigandanum sínum og hann fer til þessa fávita i von um að hann geti hjálpað honum og þá fær hann bara þessa meðferð!:cry: ég þoli ekki sona! fer ekkert eins mikið í mig og sona lagað! Þetta er akkurat ástæðan fyrir því að ég vil vera Animal cop.. Svona eins og er á Animal Planet.. :) hehe.. en þarna þættirnir Animal Cops Miami og þetta, hafði ekki séð þetta?? Ef þetta hefði gerst í Ameríku þá væru gæjarnir á leiðinni í fangelsi… Ohh ég er svo reið!! Vona að þessir strákar fái sko að finna fyrir því!!

Ég er að fara í utilegu á morgun.. Loksins.. er búin að vera bíða eftir því að fara.. sennilega eina útilegan sem ég fer í í sumar.. L það verður bara að hafa það.. tek einhver svaka pakka á þetta næsta sumar.. :lol:

En jamm.. ætla að segja þetta gott.. langaði bara að segja ykkur frá Magic.. ;) En hann var frekar mikill töffari og voðalega nice.. engir stjörnustælar eða neitt.. J

Bless í bili..

Dísa Edwards..

By the way.. lagið sem er að meika það núna er Beautiful girl með honum þarna Kingston.. man ekki fyrra nafnið.. held að það sé Shon eða eitthvað ;) en ég er alveg að fíla það..

 

Við og Magic.. ;)

 

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 14:08:09 / skvis

Costa del Kef...

Vá ég er svo léleg að blogga að það hálfa væri hellgingur.. :( nennir enginn að lesa bloggið mitt lengur.. :lol: æj ég ætla að reyna að vera dugleg. (segi þetta alltaf) kannksi anna komi og djóni hérna.. aldrei að vita.. við nennum ekki að vera blogga á feimus þegar síðan á bara að vera læst.. frekar glatað!

Allavega, eruði að grínast með veðrið sem er búið að vera hérna síðustu daga?? ekki oft sem maður getur sagt gott veður síðustu daga á íslandi.. 8) það er bara steik... Er frekar mikið að fíla þetta.. bara glatað að vera í vinnu... er einmit að vinna núna og ég sé varla á skjáinn fyrir sól!! En já ég er búinn í sumarskólanum og mér gekk bara þokkalega vel.. Fékk 9 í Efnafræði 203 og 6 í jarðfræði 103.. frekar sátt.. allavega með efnafræðina.. Það er ábyggilega ekkert hægt að fá meira í jarðfræði. Viðbjóðlegt fag. 6 er bara mjög gott myndi ég segja.. en geggjað næs að vera bara búin með 6 einigar.. þarf ég bara að taka 15 á næstu önn og útskrifast.. ;) cant wait!!

Allavega ég ætlaði bara að koma með smá blogg.. er að vinna og er á þjónustuborði.. ekkert að gera.. ætla að fara horfa á stefán keppa á eftir með Reyni.. finn á mér að hann skorar mark.. hefur alltaf skorað þegar ég kem að horfa.. ég er eitthvað svona happa dýr.. ;) en þangað til þá ætla ég í SÓLBAÐ!!!!

 Bæjó..

Dísa Edwards.. :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 07:06:41 / skvis

Im back.. ;)

Jæja, ég er byrjuð aftur að blogga á þessari síðu.. Ég nenni ekki að blogga þegar enginn les það þar sem að hin síðan er læst þannig að ég flyt mig aftur yfir hingað.. :)

Humm.. ekkert neitt voðalega mikið að gerast nema ég er að vinna og jú svo er ég byrjuð í sumarskólanum.. Drep boring.. er í efnafræði 203 og jarðfræði 103.. Er í þessu á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum þannig að það er nóg að gera hjá mér.. svo er ég alltaf að  vinna.. er alltaf að taka útköll.. nóg af money.. ;) enda þarf ég að safna fyrir Spánar ferðinni.. ohh hlakka til.. ;)

Bára var að fá lítin hvolp og díses hvað hún er sæt.. Ohh ég er að deyja mér langar svo í hvolp núna.. Hún heitir Hekla og er Golden Retriver... :) hún hitti Paris um daginn og vá hún var þvílíkur villingur.. kom fyrst og stefan setti hana í sófann og hun var alveg þvílíkt góð og sona lítil í sér... Svo bara breyttist hun og varð þvílíkur villingur.. var þvílíkt að stríða Paris.. Bítandi í hana og geltandi á hana og Paris var alveg sama.. Æj það var svo sætt að sjá þær.. Paris var þvílíkt fullorðin alltí einu.. Var ýkt ánægð með hana.. Var alveg að siða hana til og sona.. ;) Set myndir af þeim inn bráðlega..

Vá ég er svo fegin að vera í fríi þessa helgi.. er buin að vera vinna ýkt mikið.. 8| er eitthvað að gerast um helgina..?? Stefán er að fara í bæjinn í einhverja stráka ferð þannig að ég þarf þá að fara í einhverja stelpu ferð.. ;) er ekki alltaf eitthvað að ske?

En ég ætla að segja þetta gott.. Er í vinnunni... er á Saga Lounge-inum.. chill.. ;)

 Ég kem með einhverja fluga færslu næst.. ;)

Dísa Edawrds.. :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:51:45 / skvis

Útskrift 2007

Jæja.. Þá laaangur dagur búinn.. eða á ég að segja löng nótt..? :$ ég eiginlega veit ekki.. Þannig var það að ég og Anna vorum að vinna á laugardaginn frá 5 um morguninn til 5 um daginn.. Reyndar smá frí á milli en ég svaf ekkert í fríinu því ég fór í klippingu þannig að ég var vakandi frá 04:00 til 17:00 og þá lagði ég mig í 2 tíma og vaknaði aftur kl. 20:. Þá gerði ég mig klára í útskriftaveisluna hennar Maju. Allavega við fórum í hana og djömmuðum í alla nótt og fórum svo að vinna kl. 5.. :) fórum bara ekkert að sofa.. :) Það var samt ekkert erfit en þegar kl. var orðin 8 í morgun vorum við orðnar freeekar þreyttar.. Sofnuðum í miðri "Breevingu" (eitthvað stúpið orð fyrir tilkynningu) Allir bara ok, afhverju eruðu svona þreyttar..? :) hehe það var samt gaman.. en ég fór heim og svaf kl. 9 því ég þurfi ekki að mæta eftir hádegi.. Svaf til 6.. :haha: en þetta var allavega ekki eins erfit og ég var búin að ímynda mér.. Maður gerir þetta einhverntímann aftur.. Okkur langaði bara ekkert að missa af þessu gærkvöldi.. Svo er reyndar aftur næstu helgi.. Eitthvað staffa djamm á H-punktinum..

En kvöldið í gær var samt geggjað.. Takk Maja.. :* Ég er búin að setja inn myndir en það er samt ekki í sama albúmi og myndirnrar þínar.. ég fattaði það svo seint að þú varst búin að setja inn.. þanni að það eru 2 útskriftar albúm.. En það er alltílagi.. :)
Mér gekk bara mjög vel í skólanum.. ;) Náði öllu og svona.. Og held ég bara flest allar af okkur.. ;) Erum svo klárar stelpur.. 8) Kara litla kemur heim á morgun.. Hlökkum til að sjá þig.. :)

Jæja.. ætla að segja þetta gott frá mér.. Endilega skoðiði myndirnar og ég vil bara óska öllum sem voru að útskrifast til hamingju.. :lol:

Dísa Edwards.. :*

myndir á www.123.is/feimus


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 18:34:48 / skvis

*Nýtt, nýtt nýtt*

Ég er komin með nýja síðu.. eða við stelpurnar þar að segja..

www.123.is/feimus

 

Endilega tekka á þvi.. ég er samt ekki hætt með þessa síðu.. :) En þið getið líka lesið bloggin mín á hinni síðunni og mikið meira.. :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 18:51:26 / skvis

FINALLY!!

Vá Loksins get ég bloggað aftur.. Ég var farin að sakna þess að blogga.. Kominn frekar mikill tími á eitt blogg.. Málið er sko að talvan hjá okkur bilaði bar alltí einu og fórum svo fór hun i viðgerð og komumst að því að hún væri bara ónýt! 8| það er náttlega ekki alveg að gera sig. En hun Erla frænka mín var svo elskuleg að lána mér tölvuna sína.. :) þannig að nuna get ég bloggað eins og ég vil.. :)

en það er fullt búið að gerast en ég  man það varla svo langt síðistan það gerðist.. :( en allavega, ég fór árshátíðina og skmmti mér konunglega. Eftir hana fórum við niðri bæ og já, frekar spes kvöld og margt skeði en ég sé ekki eftir því að hafa ákveðið að fara á Yello.. :)

Svo fór ég á lokahóf KKÍ. Þar skemmti ég mér konunglega og held að þetta hafi verið skemmtielgasta ball sem eg hef farið á. Það var hörku stuð og alveg ótrúlega margir.

En með íbúðina að gera, þá er hún líklega seld þannig að ég þarf að búa hjá tengdó núna í nokkra mánuði. 8| en það er í lagi því það er rétt hjá Önnu. :) Bara gatan BEINT Á MÓTI! Núna get ég labbað til hennar. Hef ekki getað gert það áður, eða ekki nennt því áður.. :lol: En já það verður gaman að fara byggja og svona.. :)

En ja, pr:lol:ófin byrjuð og ég er hálfnuð. Á 2 eftir. Spæ og Stæ. það er fínt. Eitt er á miðvikudaginn og hitt á föstudaginn. svo er bara júrovision helgi..;) Party party.. ;)

Ég og Anna vorum að vinna saman áðan. Fyrsta skipti sem við vinnum saman og díses þetta verður geggjað sumar. Það voru allir bara hvað varð um rólegu Dísu?? ég og anna erum náttlega bara hlæjandi þegar við erum saman. það var ýkt gaman hjá okkur. Innrituðum Sveppa, Audda og Huginn og allt þarna næstu strákarnir eða hvað sem þetta heitir. Og svo fengum við SÓDÓ Í LÓDÓ.. ;) en það var mjög gaman.. ;) skemmtileg byrjun á sumrinu..

Ég er búin að vera með eitt lag á heilanum núna í sona 2 vikur. Það er með Akon og heitir held ég No matter eða eitthvað þannig. Æj þarna lagið ,,Nobody wanna see us together lalala.. Mér fannst það ykt leiðinlegt en svo allti einu fannst mér það gott.. heh pottþétt sú eina sem finnst það.. 8) I have my reasons.

En jæja, ég verð að láta þetta nægja.. Er að fara í bíó á Blades of Glory með Stefánowich og Önnu.. Ætla að enda þetta hérna á mynd af mér og Önnu af lokahófinu.. Vonandi er eigandanum sama að ég steli henni.. :)

Bless í bili... lofa að vera dugleg nuna.. ;)

Dísa Edwards.. :*

So sætar.. :*


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 17:23:38 / skvis

So sorry..

Það fer alveg að fara koma nytt blogg.. Talvan okkar er biluð.. :( en hun fer i vidgerd i kvold tannig ad vonandi get eg bloggad bradlega. Fullt sem eg þarf að segja þannig að þið megið búast við þrusu bloggi.. ;)

Bless á meðan.. ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 10:57:43 / skvis

Gleðilega páska.. ;)

Góðan daginn og gleðilega páska.. :lol: Hvað segiði þá? ótrúlegt að það séu komnir páskar.. Svo fljótt að líða allt saman.. bara strax komin apríl og sumarið er að koma og það eru nýbúin að vera jól.. 8| sumardagurinn fyrsti í næstu viku..

Ég var nu bara að vinna alla páskana.. nema í dag, fékk frí í dag.. Svo margir að fara til útlanda í páskafríinu og sona þannig að það er nóg að innrita.. mér langar stundum svo að hoppa með, eins og ég í gær, nóg pláss í Orlando vélinni og ég var látin fara upp með eitthvað dót, vá hvað mér langaði bara að hoppa í eitt sætið og fara með.. verð að fara aftur til orlando í haust.. bara geggjað.. Ég er nú að fara til Spánar samt.. ;) það verður mega gaman. Er að fara til Abír, sona 5 min frá Benidorm. Ég og Anna fórum þangað sumarið áður en við byrjuðum í FS og það var geggjað.. ;)

Talandi um Spán þá er Stefán að fara til Spánar núna á miðvikudaginn. það þyðir bara eitt.. Party party.. ;) Anna er búin að panta í viku (heima hjá mér) hún fær helminginn hans Stefáns þannig að ég sef þá allavega ekki ein.. ;) í fyrra þear hann fór þá var anna einmit hjá mér og það var bara mjög gaman.. Anna, við getum þá loksins gert sketsana okkar.. ;) paris getur leikið eitthvað aukahlutverk.. ;)

Ég er ekki alveg að nenna fara aftur í skólann. Strax byrjaður aftur, ekki á morgun heldur hinn.. 8| samt kannksi alveg fínt að hitta alla aftur.. :) er bara að bíða eftir að hann klárast. nenni þessu ekki lengur.. vill bara komast í sumarfrí, ef það kallast frí. vinna allt sumarið.. samt skemmtileg vinna þannig að..

Ég fékk 3 páskaegg, reyndar á stefán 1.. Ég er búin að fá ógeð.. Borðaði nammið sem var inn í því og svo smá brot af egginu og það var nóg.. Yfirleitt endast páska egg mér allt árið. Ef maður brýtur þau niður og setur þau inn í frysti þá endast þau allt árið. ;) hehe eða sona næstum því..

En djös vesen að grindavík hafi ekki unnið Njarð.. Njarð átti ekki að vinna þetta.. fer ekkert meira i taugarnar á mér en þegar njarð vinnur eitthvað. vona að KR vinni.. ;) hehe

Ég er að fara í eitt brúðkaup í sumar.. ;) Hlakka ýkt til. Erla og Skúli eru að fara gifta sig. Sennilega eina brúðkaupið i þessari fjölskyldu sem ég vill alls ekki missa af.. Elska að fara í brúðkaup.. :)

Heyrðu já, Fedde le Grand maður.. ég er að gleyma því.. ;) Ég og Anna fórum á Fedde le Grand síðasta mivikudag og það var bara geggjað.. Það var samt svo ógeðslega viðbjóðslegt fólk þarna inni að það hálfa væri helligur. Held ég hafi aldrei á ævinni séð sona mikð af ógeðslegu fólki saman komið á einn stað. Og þetta lið var heldur ekki á einhverjum vægum efnum,, neinei, það sást bara hinum megin í húsinu í hvernig ástandi fólkið var, allir a áhrifum e taflna, sást langar leiðir.. Frekar ógeðslega. maður var bara skíthræddur þegar einhver kom við mann. Enda fórum við nokkrum sinnum inná klósett að þvo okkur um hendurnar.. hehe ok þetta hljómar eins og þetta hafi verið ýkt leiðinlegt og ógeðslega en eþtta var samt ýkt gaman þrátt fyrir allan viðbjóðinn. ;) Ég og Anna vorum þarna í zoninu okkar að dansa við Fedde. Erum búnar að vera bíða eftir þessu.. þetta var bara BCM all over again.. ;) þið sem vitið ekki hvað BCM er þá er það á Mallorca og er ein stærsti klúbbur í evrópu, já þá sennilega techno staður.. Frekar töff.. En já, þá erum við allavega búnar að hitta Fedde le Grand.. ;) hehe..

Paris er ófundsjúk útí mig.. Ég má ekki halda utan um Stefán eða kyssa hann þá verður hún alveg brjáluð. Gefur frá sér einhver frekju hljóð og stekkur uppá okkur og reynir að troða sér á milli.. Hun er alveg ótrúleg. Hun gjörsamlega elskar Stefán. Maður er bara komin með samkeppni..

Ég vaknaði um daginn kl. korter í 6 og fór í spinning.. Ýkt hressandi.. Við erum að tala um það að ég fá svona helmingi meira útúr því að fara í spinnig heldur en á körfubolta æfingu. Miklu meiri brensla.. Eg er ekki buin að hreyfa mig neitt um páskana.. :$ Spá í að hringja i perluna eða lífstíl og spurja hvort það sé opið.. það er aldrei opið á sona dögum, nema kannksi frá 8-12 eða eitthvað.. maður er ekkert vaknaður fyrir kl. 12, nema kannski ég, stelpan sem getur ekki lengur sofið út. Síðan ég byrjaði að vakna kl. 4 þá get ég bara ekki sofið út. Að sofa út er til sona 11 hjá mér núna..

Jæja. ég ætla að fá mér að borða og koma mér út að hlaupa eða eitthvað.. ja svo er það annað.. það vatnar einhver svona stað sem maður getur farið og hlupið. ég þoli ekki að hlaupa úti, mér verður alltaf skítkalt strax og svitna ekki neitt.. og ég nenni ekki að hlaupa í reykjanes höllinni.. það vantar svona íþrótta hús sem maður má koma inn og hlaupa. ég vil fara hlaupa aftur. nú hugsar einvher, farðu og hlauptu á hlaupabretti.. það er ekki það sama..

En nú er ég farin.. orðin svöng..

Bless í bili..

Dísa Edwards.. :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 17:54:41 / skvis

Put your hands up for Detroit...

Jebb ég og Anna erum að fara á Fedde Le Grand 4.apríl.. ;) mér hlakkar GEGGJAÐ til.. Soldið lúðaleg saga en ég vann 2 miða á Fm og páskaegg nr. 10!! ;) Bara gaman.. ;)

En ég ætla að byrja á því að hrósa commenturunum mínum. Vel gert.. sona á þetta að vera. 19 comment.. ;)

En jamm.. á ég að segja ykkur? Hun Paris á kærasta sem heitir Argó og er algjör töffari.. ;) Hann er líka Rottweiler hundur. þau eru samt ekki búin að hittast en Paris er búin að sjá mynd og leist vel á hann.. ;) og það þarf náttlega ekk9i að spurja hvort honum líkar Paris.. Hun er náttlega bara beautyqueen.. ;) en þau eru að fara hittast á eftir, það er að segja er Argó bailar ekki. Buinn að gera það 2svar.. Hann er eitthvað að playa þetta hard to get eitthvað, voða töffari... En talandi um Paris, hun er á gelgju dauðans! Við erum alveg að bilast á henni.. Hun er sona skeiði sem stendur yfir í 8 mánuði og þetta er helmingi verra en hvolpa skeiðið. Þetta lýsir sér þannig að hðun þykist ekki kunna neitt. Kann ekki sitja, liggja og bar hlýða yfir höfuð! þetta er akkurat tíminn sem sumt fólk losar sig við hundana sína því það heldur að þeir seu bara orðnir eitthvað geðveikir.. en paris er akkurt á þessu nuna og gekk það langt í gær að hún át nýjun skóna mína sem eg var buin að nota einu sinni by the way, hárbandið hans stefáns, legghlífarar hans og vettlingana hans og endaði þetta svo með tilþrifum og borðaði inniskóna mína og þá meina ég bókstaflega éta, ekki naga! Enda svaf hún í búrinu í alla nótt. Alveg ótrúleg! Ég var ekki sátt, sérstalega með nýju skónna. Var að kaupa þá.

Það gerðist samt soldið skemmtilegt í gær.. :) ég gerðist ljósmóðir og tóká móti litlum kettlingum.. :D vinkona hennar mömmu á Kisu og hun eignaðist kettlinga í gær og auðvitað var hringt í mig, the animal lover.. En ohh þetta var svo sætt.. :lol: hun eignaðist einn svartan og hvitan og svo sona appelsínugulan og hvítan.. En um nóttina fæddi hun svo 2 í viðbót en í morgun var einn dáinn.. :cry: ég var miður mín, og það var einn sem ég sá fæðast.. greyið litla.. pínku ponsu lítill.. :( litla grey.. en hun á allavega 3 sæta núna og var þvílíkt malandi áðan þegar ég kom og heimsótti þá.. ;) en já ég var alveg bara ok, ég ætla að verða dýralæknir. Held að það sé bara made for me. Skal segja ykkur nokkrar dýrasögur.. þegar ég var lítil og eg var að labba úti og sá orm á götunni eða í polli, semsagt ekki í mold, þá tók ég hann upp, gróf holu og setti hann oní. Jebb, gekk það langt. þegar ég var úti á Spáni núna síðast með Önnu vorum við að labba og löbbuðum fram hjá einni sona búð og fyrir utan búðina lá hundur og hreyfði sig ekki. Og ég bara ok, hundurinn er að deyja ur hita. Hann sko hreyfði sig ekki, leit ekki einu sinni upp eins og flest allir hundar mundu gera. Ég var náttlega að bilast yfir þessu og sagði við Önnu að hundurinn væri að fara deyja og byrjaði að gráta, já ég fór að gráta og Anna var alveg bara Dísa koddu bara, reyna fá mig í burtu. En ég gat bar ekkert skilið hann eftir og fór inn í búðina, með tárin í augunum og spurði konuna hver ætti þennan hund og hun alveg: ohh ég, hann er bara að hvíla sig, liggur altaf svona. Ég bara jebb ok..

Ég er að fara í leikhús í kvöld á Leg með skólanum eða ISL 503 hópnum. Veit ekki alveg í hverju ég á fara þar sem Paris nagaði skónna sem ég ætlaði í. Ég finn eitthvað sniðugt.

Síðasti dagurinn í dag fyrir páskafrí.. ;) djöfull er ég fegin.. fá smá frí frá skólanum. Svo verður þrusu party hér á laugardaginn.. Halda upp á afmælið hennar Önnu.. ;)

En ég ætla að segja þetta gott í bili.. verð að kíkja með unglinginn minn út áður en ég fer.. ;)

Bless í bili.. ;)

Dísa Edwards.. :*

Ps. Komnar myndir inná www.picturetrail.com/edla ... tékk it.. ;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 20:47:36 / skvis

Afmælis dagur..

Kominn tími á blogg? Já ég held það.. :)

Eg verð að segja ykkur ykt fyndið sem gerðist um daginn.. þetta var á fimmtudaginn og ég var að vinna um morguninn og eg var ofur þreytt þegar eg átti að mæta i skólann kl. 9. Svo var Mói veikur sem by the way made my day þannig að ég fór í 1 tíma kl. 9 og for svo heim að sofa og ætlaði að mæta aftur kl. 12. átti semsagt eyðu og svo hádegi. allavega, ég ákvað að vakna kl. half 12 og faqra niðri skola og fá mér að borða þar..svo vakna ég kl. half 12 og er alveg æjj ég ætla að sofa í 10 min í viðbót. Svo vakna ég 20 min. í og klæði mign og fer niðrí skóla. og þegar ég kem þá er engin af stelpunum niðri og frekar svona fáment, en samt alveg ágætlega margir.. og ég var alveg voðalega eru eitthvað fáir að borða í skólanum í dag.. svo sest ég niður og sendi Önnu sms og spyr hana um að koma niðri skóla því ég sé alein, hun var buin að segja mer að hun ætlaði heim i hadeginu. svo fæ eg ekkert svar en í allti einu kemur Helga og byrjar aðs egja mér smá sögu. förum ekekrt útí hana.. hehe.. ;) allavega svo kemur Hrönn og ég segi: Hvar varst þú góða?
Hrönn: Ég var bara í stærðfræði.
Ég: Voðalega varstu eitthvað lengi.. (klukkan orðin alveg 12:05)
Hrönn: já ég er allataf svona lengi í stærðfræði.
Ég: han í alvöru? varstu í prófi eða eitthvað?
Hrönn: Nei..
Og ég alveg jæja og hætti að pæla í þessu.. Í þessu kemur Maja og ég segi: hvar varst þú í hadeginu?
Maja: ég var bara hérna í skólanum.
Ég: hérna í matsalnum?
Maja: Já..
Ég: bíddu hvar? ég er ekki buin að sjá neinn hérna síðan ég kom og ég er búin að sitja hérna síðan kl. 12.
Maja: Dísa, vorum allar hérna ðí hadeginu. ég sat hér og bára við hliðina á mér..
og svona var þetta í sona 5 min. Ég þrætandi fyrir það að þær hafi ekki verið herna þvðí ég var buin að sitja ein.. Svo eftir smástund segi ég og stelpur hvað er eiginlega klukkan??
Maja og Hrönn: korter yfir 1...
og þá hafði ég sofið í klukkutíma í staðin fyrir þessar litlu 10 min sem ég ætlaði að sofa og vaknaði kl. 12:40 í staðin fyrir 11:40 og fattaði það ekki og fór bara niðrí skola og var þar. Búin að missa af tímanum og orðin og sein í vinnuna.. átti að mæta kl. 1.. Vá þetta var svo skrýtið.. Missti klukkutíma úr lífinu mínu.. 8| en svo erum við hlæjandi af þessu nuna.. stelpurnar voru bar Dísa, ertu orðin eitthvað rugluð.. hehe frekar fyndið.. en þetta reddaðist nu allt saman sem betur er með vinnunu.. :lol:

En já, ég fór uppí bústað síðustu helgi. Ohh hvað það var nice. Ég, Stefán og Paris kíktum og Erla og skúli voru líka í bústaða rétt hjá okkur.. við lögðum seint af stað á föstudaginn, eða eftir leikinn hjá Stefáni og við vorum komin um 2 leytið. Þurftum að leyra á 60-80km frá göngunum það var svo mikill bylur.. frekar fúlt þannig að við vorum ofur lengi á leiðinni. mamma og pabbi lánuðu okur jeppan, hefðum sennielga ekki meikað það á Poloinum. en var ég hef aldrei seð svona mikinn snjó á ævinni held ég eins og var uppí bústað.. það snjóaði endalaust, Parisar til mikillar ánægu. Hun var uti til sona 3.. bar ekki séns að ná henni inn. Henni finnst ekkert eins skemmtielgt og að vera uti í snjó. svo er hun alltaf að hoppa upp í snjókornin til að ná þeim. algjör mús.. :) en á laugardaginn forum við í stóra og langa göngu, við stefán, erla og skúli og Paris.. Við löbbuðum í öllum þessum snjó og fórum að skoða hraun og barna fossa.. díses hvað þetta tðok á.. hehe.. ég er ekki buin að hlaupa svo lengi eða labba sona lengi.. og + það að labba í snjónum.. tvöfaldaðist alveg.. ég og Erla lögðum okkur allavega oft á leiðinni.. ;) en það vare mjög gaman og Paris var alveg í skýjunum. Hljóp alla leiðina og elti snjóbolta.. Og hun fekk sko ekki leið á því. Hun var samt farin að grata i endirinn því hun var orðin svo þreytt en samt elti hun.. hun var líka buin eftir þetta.. Þegar við komum heim kíktum við öll í pottinn og grilluðum svo. Erla koma með geggjaðan eftir rétt sem mistokst samt pinu en samt góður engu að síður.. ;) svo tokum við Trivial á þetta og við töpuðum aftur fyrir erlu og skúla og ég kenni Stefáni hiklaust um þetta.. :klikk: en svo var bara farið að sofa fljótt eftir þetta. Við stefán lögðumst i sofann og horfðum á friends og ég sofnaði (OF COURSE) eg var bara buin á þvði eftir þetta labb.. Svo fórum við heim á sunnudeginum og fórum í fermingu hjá frænda mínum.. Fín helgi.. :)

Ég ætlaði að tileinka Önnu þenna kafla sem kemur hér.. Hun á afmæli í dag og er orðin 20 ára! Pæliði i þvi..
Elsku Anna mín.. :*
Til hamingju með þennan geggjaða dag. Ótrúlega skrýtið að það erukomin 20 ár, mér finnst við ennþá eitthvað svo "litlar".. :) en já, þrátt fyrir þennan aldur lítur allataf jafn vel úr og alltaf jafn sæt.. :) þú átt ekkert nema það besta skilið því þú ert alltaf góð við allt og alla. Hlakka til að halda uppá afmælið, gerum eitthvað sniðugt.. ;)
Til hamingju enn og aftur, þín besta vinkona að eilífu, Dísa.. :*

 

Paris fór í bað í gær. Hun er alltaf svo fyndin í baði, hun ætlar sko ekki oní það þegar maður segir bað en svo finnst henni það bara þægilegt. Lata klóra sér og svona .. ekki leiðinlegt.. Nuna ilmar hun öll og er algjör pæja, hrein og fín.. hun situr einmit hjá mér nuna og er að væla. vill fara út. ég er ekki að nenna út í þetta veður, en ætli ég verði ekki. maður þarf vist að gera þetta ef maður ætlar að eiga hund.. :) 

Ég held eg segi þetta bara fín.. Það eru líka að koma myndir fra helgini og baðinu hjá paris.. hehe.. :) þannig að bara fylgjast með.. :)

bæjó..

Dísa Edwards.. :* 


» 20 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 09:36:10 / skvis

Hún á afmæl'í dag.. Hún á afmæl'í dag...

Paris litla bara orðin 1 árs.. :) Hún á afmæli í dag. Svaka pæja. Er með bleika slaufu og alles.. ;) Hún fékk þetta fína bein í morgun og líka dót og dótið er strax orðið ónýt og beinið búið. Ótrúleg.

Ég byrjaði að vinna í gær. 8) Svaka stuð, nema það að ég er geðveikt þreytt. Vaknaði í gær kl.4 og var til 9, fór svo aftur kl. 1 og var til 5. Vaknaði svo aftur í morgun kl. 4. Ýkt þreytt. Get ekki beðið eftir að fá að sofa út á morgun.. :lol:

Helgin var fín. Á föstudaginn fór ég að lyfta eftir skóla og svo fórum ég, Stefán, Anna, Kara og Maja í bíó á Music & Lyrics. Mér fannst hún góð en Stefán sofnaði. :haha: hann var ekki alveg að fíla þetta. skil það svosem vel, ekki beint mynd fyrir stráka.. en hann vildi koma með. Eftir bíóið fórum við bara heim að sofa því við þurftum að vakna snemma útaf því að við vorum að fara á hundasýnignu í rvk. Við vöknuðum kl. 8 og komin í reiðhöllina í Víðidal kl. 10. Sýningin var mjög flott. Fullt af flottum hundum.. Mér langar svo í annan núna að ég er að deyja... Mér langar svo í Cavalier. Þeir eru svona litlir, hvítir og brúnir með síð eyru.. owwww so sætir.. Stefáni tókst reyndar að heilla mig af einum hundi sem hann er búin að vera biðja um í sona 4 mánuði núna. ég er ekki að leyfa honum að kaupa hann. Franskur mastiff.. En það var verið að síðna þannig hvolpa og jii og þeir eru algjörar dúllur. En við fáum okkur engan fyrir en við erum flutt í nýja húsið.. Svo var verið að sýna Rottweiler, Bxer, St. Benhard og díses krist hvað þeir eru stórir. Huge. Við erum að tala um það að eigendurnir voru með handklæði að þurka slefið hjá þeim. Svo var Husky og allskonar. Mjög flott.. Eftir hana fórum við að versla í rvk. Mér vantaði skó fyrir vinnuna og sona og stefán misti sig í Cultur eða hvað sem hún heitir.. Þannig að núna á ég inni 7000kr. fatapening.. ;) alltaf ef hann kaupir eitthvað þá má ég kaupa mér eitthvað fyrir jafn mikið. Svona regla hjá okkur.. ;) Svo buðu mamma og pabbi okkur út að borða á nyja staðinn hér í kef þarna Tai Mai eitthvað.. you know.. Ég var ekkert alltof kár með minn mat en hin voru sátt með sitt.. Svo enduðum við þetta hjá Erlu og Skúla í Trivial og við Stefán lentum í 2. eftir mjög slaka byrjun, og var þetta í fyrsta sinn sem Stefán tapar í Trivial á ævinni.. Ég var ekki ánægð með hann. en hann bætti þetta upp á loka sprettinum... ;)
Á sunnudaginn vöknuðum við svo snemma aftur og fórum með Paris uppí Reiðhöll til að hitta aðra hunda. Þeir voru nú ekki margir þennan sunnudaginn, bara 2 tíkur sem vildu ekkert með hana hafa, þannig við fórum aftur útí bíl. En hún hitti svo 3 hunda og fékk smá útrás.. En díses annar hundurinn ætlaði bara að fara uppá hana.. Hann hætti ekki að elta hana. Greyið paris var ekki að fíla þetta. Hann var alltaf að reyna hoppa uppá hana og hún greyið alltaf að snúa sér við. svo var hann sleikjandi hana og allt að gerast hjá honum. Algjör graðfoli. En ég skil samt alveg afhverju hann var að þessu. Paris er náttlega beauty. Er ekki annars sagt að þeir líkjast eigendum sínum..? ;) djók.. :)

Svo fór ég bara að snemma að sofa um kvöldið. Þurfti að vakna svo snemma. En það náttletga tókst ekki. Ég gat ekki sofnað. var alltaf að spá ef ég myndi sofa yfir mig og eitthvað. ýkt óþægilegt.. :$  þannig að ég fór ekkert það snemma að sofa...

Hljóðnemaæfingarnar eru búnar að ganga fínt. Mér gengur bara mjög vel myndi ég segja. Bara eitt sem ég er ekki sátt með. Það er búið að færa hana þangað til á miðvikudaginn og allar stelpurnar eru að keppa í HVERAGERÐI!! Þannig að ég fæ ekki stuðning frá Önnu, sem er glatað.. En ég hef þó Báru Unni og Helgu.. :) 

Já ég gleymdi að segja.. þegar við vorum að versla þá fór ég í debenhams að kaupa mér MAC fyrir vinnuna.. og það var hommi sem málaði mig. Og hann var sko alveg að fíla sig. Hann var alveg bara: Úúúú. i just love you eyes, they make my job much easyer.. Ég bara ahhaaa... en hann málaði mig bara mjög vel og náði að selja mér þetta.. Vel gert hjá honum.. bara pínu skýtið að láta einhvern enskan homma mála sig.. :lol:

en ég ætla að fara legja mig.. :)

Bæjó..

Dísa Edwarsd.. :* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 13:31:15 / skvis

Hitt og þetta..

Jei ég byrja að vinna á mánudaginn.. ;) en það þýðir að ég þarf að nýta næstu daga VEL til að sofa úr því ég er að fara vakna kl 03:45 næstu daga.. :$ hlakka reyndar ekki til þess.. en þetta verður ábyggielga fínt. þetta er bara 4 tímar í einu.. Ég mætti aftur í skólann í dag eftir langa fjarveru. Það var bara fínt.. :) stuttur dagur líka. búin kl. 1, og síðasti tími bókfærsla. Það er voða næs.. ;) Við Anna erum svo að fara lyfta og so ætlum við að kíkja aðeins í pottinn og svo skella okkur á Kef-Tindastóll. Æj paris er svo mikill dúlla. Hun stendur hérna fyrir framan mig með dót og vælir. Vill fá mig til að leika. Aljört krútt.. En talandi um hana þá verður hun 1 árs næsta þriðjudag, eða 6 mars. ;) ég er ekki alveg að trúa því, 1 árs!! Líður ekkert smá fljótt. mér finnst bara eins og ég sé nýbúin að fá hana, eða ég fékk hana reyndar ekki fyrir en í maí. En það gerðist samt líka eitt mjög sorglegt 6.mars fyrir ári.. :| Ronja litla var svæfð.. :cry: Greyið litla dúllan mín..

Ronja sæta.. :*

Ég og Unnur vorum ekkert smá duglegar í í gær. Fórum í Perluna og tókum heavy á því.. Sérstaklega magaæfingar. Vorum að deyja eftir þær. Unnur var rosaleg, hún gat varla staðið upp eftir þetta. Snilld.. :) ég var að kenna henni nýtt "magaæfinga-sett" tekur rosa í.. :)

Svo er hljóðneminn bara á þriðjudaginn. Og haldin í bíóinu.. Mér finnst það pínu spes en það kemur vonandi vel út. Ég ætla ekki að segja hvaða lag ég syng, þið vitiði bara sem vita það.. :) hvað er það samt að hafa ballið í grind..? er ekki alveg að nenna fara þangað.. leiðinlegt að vera þarna. en það er bara mín skoðun..

Hvað seigiði stelpur, voruði að biðja um hitting..? já þið segið nokkuð?? er eitthvað að gerast um helgina? við verðum nú að hafa afmælishitting fyrir paris.. 8) Æj hún meiddi sig samt ýkt á sunnudaginn. Hún var að leika út í garði með Yasmin (boxer hundur sem býr rétt hjá) og þær voru þarna hlaupandi útum allt, voða gaman. En lætin voru svo mikil að Paris hljóp á staur. Sá hann ekki. og greyið kom alveg hoppandi á 3 loöppum til Stefáns og var alveg grátandi og fór beit til hans eins og hann ætti að laga þetta. heh þetta var ýkt sætt. Þetta var sona ,,Hjálp pabbi" allgjör dúlla. En hún var sem betur fer ekki brotin þrátt fyrir ofur högg. Hún er orðin 41 kíló. Vorum að vigta hana. Þá eiga eftir að koma sona 10-15 kíló í viðbót.. díses hún verður huge... Mér hlakkar svo til þegar hún eignast hvolpa. Guð ég á aldrei eftir að tíma selja þá. Það er meira segja strax búið að panta einn.. :) eina stelpu. Ég ætla að eiga einn strák. get ekki gefið all frá mér. Ohh rottweiler hvolpar eru so sætir.. :lol:

jæja ég held ég neyðist til að hætta. Verð að labba aðeins með Paris. Hún er bara vælandi hérna og horfir á tauminn sinn.. Svo klár..

Bless í bili..

Dísa Edwards.. :* 

Töffari.. <img src=" title="Töffari.. ;)" width="588" height= "439" align="middle"> 

Ps. fylgjast með myndaalbúmunum. Fara koma inn helling af nýjum myndum.. ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 14:55:14 / skvis

23

Ég og Anna fórum í bíó í gær á The number 23. Hún er frekar ógeðsleg, eða kannksi ekki beint ógeðsleg heldur sona scary shit.. Ég var allavega ekki alveg að meika það.. Skil ekki hvernig Önnu tókst að draga mig á hana.. langt síðan ég hef farið á sona hræðslu mynd í bíó.. En allavega ég ætla ekkert að vera segja eitthvað frá myndinni, eflaust ekki allir búnir að sjá hana, en hún er allavega um töluna 23 og það tengist henni allt. Allt sona scary eitthvað.. eins og 2 deilt með 3 eru 0,666 og passíusálmarnir eru 22 og 23. fjallar um dauðann og allt eitthvað þannig.. Allavega ég ætla ekki að segja neitt meira frá því en ég og Anna löbbuðum út í bíl þegar bíóið var búið og settum hann í gang og þá var klukkan 12:23!! Frekar scary.. Og svo vorum við komnar á reykjanesbrautina og þá gemur svona skilti sem sýnir veghitann og lofthitann og veghitinn var 2 og lofthitinn 3... hverjar eru líkurnar!! Við vorum náttlega að bilast sko.. frekar fyndið..

En við gerðum nú meira þessa helgi en að fara í bíó.. Á föstudaginn fórum við og sáum Keflavík tapa fyrir Njarðvík. Frekar slappt.. Keflavík ekki alveg að standa sig, eða Njarðvík svona góðir.. Allavega, eftir það þá kíktum við Anna aðeins heim og fórum svo í afmæli til Báru.. Það var stuð og við vorum að spila Party og Co fram eftir nóttu. Ég og Anna vorum saman í liði og við stóðum okkur eins og hetjur.. við hugsum svo eins að það er ekki fyndið.. Í hvert einastaskipti sem ég lék þá sagði hun orðið strax, og ótrúlegustu orð.. ég fékk t.d. orðið BREIÐA og átti að leika það.. Og eg var alveg YES, auðvelt.. allir bara HA!! svo sögðu þær byrja og eg byrjaði og eina sem ég gerði var að ég lék eins og ég væri að setja sæng á rúmmið og fyrsta sem anna sagði var BREIÐA og við fórum náttlega í kast. Stelpurnar voru bara þið hljótið að vera grínast! Svo var líka annað orð.. Ahh man ekki hvað það var núna en það var jafn fáránlegt og Breiða.. Anna commentaðu orðinu.. En hún gat það líka bara strax eins og hitt og það var fyrsta orðið sem hún giskaði.. Bara gaman.. og líka þegar við vorum að teikna.. Ég náttlega með mína teiknihæfileika og anna gat það alltaf í fyrsta.. Ýkt fyndið.. en við fórum heim kl. 2 en það var einfaldlega afþví að ég þurfti að mæta í próf kl. 9 um morguninn.. :$ próf í innritunninni.. En mér gekk bara mjög vel.. :D Loksins búið þetta helvítis námskeið.. eða 2 dagar eftir.. það er fínt.. búin að missa ábyggielga fullt úr í skólanum..

Í gær (laugardaginn) gerði ég svosem ekki mikið.. ég ætlaði í bæinn á hudasýningu og kaupa még skó en það var svo bara ekkert úr því.. þarf að fara bara á miðvikudaginn.. Við enduðum bara í mat hjá tengdó og svo ég og anna í bíói..

í dag verður heldur ekkert mikið gert held ég.. Stefán er að klára pallinn svo hægt sé að selja og ég er bara eitthvað að chilla.. er að bíða eftir að Anna vakni.. :lol: langaði í sund, kíkja í pottana.. langt síðan maður hefur gert það.. Hlakka til að fá minn eigin pott.. þá verður nú alltaf pottaparty.. ;) ha stelpur.. ;) ekki til í það..? ;)

Ég er búin að taka mér frí frá körfunni.. eða segjum bara svo að ég er hætt að æfa með kef.. ekki alveg að fíla þetta.. Þið vitið hvernig þetta er þið sem standið í þessu líka.. En ég er bara mjög ánægð með það.. get farið að einbeita mér aftur að því að fara lyfta og svona.. Miklu skemmtilegra og maður fær svo miklu meira út úr því.. Svo er ég náttlega líka með þetta helvítis brjósklos þannig að ég sagði þetta bara gott í bili allavega.. En það er bara gaman.. ;)

Paris borðaði hestaskít áðan. Getið rétt imyndað ykkur lyktina sem var í bílnum þegar hún kom til baka. Alveg æðislegt.. ;)

Ég held ég segi þetta bara gott.. :)

Takk fyrir afmælisboðið Bára mín og til hamingju með afmælið.. ;) þú segir okkur svo sögurnar með afmælisgjafirnar við tækifæri.. ;) haha

Dísa Edwards.. :*


» 11 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 21:35:49 / skvis

Svo gaman að dansa...

Já Aníta er það ekki.. ;) Hehe..

helgin var bara fín.. Vorum að keppa á laugardaginn, töpuðum með fokking EINU eins og þið hafið eflaust heyrt.. bara svekkjandi.. En sona skeður stundum.. Tökum bara Íslandsmeistaratitilinn.. ;) En eftir laikinn kíktum við Stefán á systur hans og förum svo að "húsast".. eins og einhverjir vita þá erum að byggja þannig að eina sem maður er að spá núna er hvernig stíl maður vill.. getur verið soldið erfit að ákveða.. þetta er sona eitthvað sem manni er ekki sama um.. þetta verður samt geggjað.. Erum með allskonar stíla og sona.. Allt eins og við viljum. Stórt fataherbergi og geggjað og huge klósett út frá herberginu.. bara geggjað.. hlakka ýkt til.. ;) En allavega, svo komu nokkrar gellur til mín um kvöldið en við Anna enduðum nu bara 2 niðrí bæ.. Kíktum fyrst heim til AMS í party. Þar voru báðir meistaraflokkarnir.. það var fínt. Fórum svo niðrí bæ um 2 og ég var komin heim kl. 4.. Var ekki alveg að nenna fara á þetta ball í grind.. Það er nú aldrei neitt spes þar hvor sem er..

Á sunnudaginn fórum við svo á Pabbinn, leikrit sem var verið að sýna á vegum körfunnar í kef.. Það var ógeðslega fyndið.. Ef einhver sá Hellisbúann þá getur hann alveg ímyndað sér hvernig þetta var..

Ég fór svo á þetta blessaða námskeið í morgun.. Komst reyndar í skólann. Fyrsta sinn í langan tíma. Kemst svo ekki aftur fyrir en fimmtudaginn í næstu viku! Fékk líka allt í dag, heimadæmi, verkefni, þarf að taka próf og allt að gerast.. Rosa stemning! 8) Sumir segja kannski vá vertu fegin að fá að sleppa skóla en það er ekkert þannig.. þetta er nebblilega eingan vegin skemmtilegt.. nema þegar við erum að gera eitthvað verklegt.. það er fínt..

Þið sem þekkjið mig þið vitið hvað ég er ótrúlega heppin eða þannig.. Ég var hjá lækni um daginn ( o really) og ég var í myndatökum og svona því mér er svo illt alltaf í bakinu. Búin að vera það í alveg 3 ár.. Alveg frá því að ég var alltaf að festast í því. Og þá kom í ljós að ég er með brjósklos.. :cry: það er bara ömurlegt.. Ekki eitthvað sem maður óskar sér.. En það hlaut líka eitthvað að vera ekki í lagi.. Alltaf illt í bakinu og eitthvað vesen.. Svo kom þetta bara í ljós.. ekta ég að lenda í þessu.. Ég er alltaf svo óheppin með allt sona..

Mér langar svo í annan hund.. Reyndar er Stefán búin að smita mig í þessu "annan hund máli".. honum langar bara í hund sem mér langar ekkert voða mikið í. Sá hundur er Franskur Mastiff. Það er sona hundur eins og var í myndinni Turner & Hooch, sona sem slefar mikið.. En ef hann vill skúra einn alla daga þá má hann það mín vegna.. ;) nei segi svona.. en mér langar bara í annan Rottweiler.. Miklu flottara að eiga 2 þannig heldur en sitthvora tegundina.. En kannski fáum við okkur bara annan í nýja húsið.. miklu meira pláss þar..

Ég er að horfa á Heroes.. Horfiði á það..? geggjaðir þættir.. Samt pínu skrítnir stundum.. Ég elska samt One Tree Hill.. Og glæstar vonir, má ekki gleyma því.. ;) er samt ekki búin að horfa á það í næstum ár, alveg frá því ég flutti að heiman, fór samt heim til mömmu um daginn og sá smá.. þessir þættir koma sífellt á óvart.. alveg ótrúlegt..

Mér langar svo til útlanda.. Lítur út fyrir að ég komist ekki á þessu ári.. :( tekur svo mikinn tíma og pening í að byggja.. Kannski við tökum bara helgarferð á þetta, en það verður engin svona Orlando ferð eins og í fyrra.. :S Mér langar svo í eitthvað heitt land.. Í sólbað.. Mér langar lika svo að fara í eyðimörk. ég og anna erum búnar að ákveða það að einhverntímann á okkar lífsleyð ætlum við í sólbað í eyðimörk.. 8) Mér langar líka til Madagaskar..

Ég og Anna erum búnar að vera missa okkur yfir Dolly song laginu.. geggjað lag.. ;) þetta er sona lag annaðhvort hataru það og þá meina ég vikrilega hata það eða þá að þú elskar. Ég og Anna flokkumst undir það síðarnefnda. ;)  

Jæja, ég er hætt. Búin að missa af Heroes og allt.. Segjum þetta gott í bili..

Dísa Edwards..:* 

Ætla að minna á að það eru komnar nyjar myndir í Myndaalbúm.. ;) ný almbúm og allt að gerast.. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Körfubolti..
Leitarbox

Dagsetning
9. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti